2. september 2010 01:49

Æfingaleikir hjá meistaraflokki karla

Um helgina mun Skallagrímur taka æfingaleiki í Fjósinu, allir á pallana og taka strákana út.

 

 

Föstudagur

19:00 Skallagrímur vs Laugdælir

 

Laugardagur

12:00 Skallagrímur vs Laugdælir

14:00 Laugdælir vs Leiknir

16:00 Skallagrímur vs Leiknir

 

meira...
2. september 2010 09:00

Tímatafla í körfunni september 2010

Nú er tímatafla fyrir körfuboltann kominn inná síðuna.  Þessi tafla verður í gildi í september.  Ef breytingar verða um mánaðarmótin verður það auglýst hér á síðunni og í íþróttahúsinu.

Sjá hér undir meira. 

meira...
25. ágúst 2010 02:20

Æfingar hefjast hjá körfunni 6. september

Nú eru æfingar að hefjast í körfunni.  Mánudagurinn 6. September er fyrsti æfingadagur í íþróttamiðstöðinni Borgarnesi.  Æfingar eru fríar til 17. September og við hvetjum alla krakka til að koma og prufa. Allir krakkar í Borgarbyggð eru velkomnir.

 Það er ennþá kvennaátakið okkar í gangi þannig að stúlkur greiða ekki æfingagjöld fyrr en í nóvember.  Æfingagjöld verða að öðru leyti óbreytt frá fyrra ári.

Þjálfarar verða:  Finnur Jónsson, Pálmi Þór Sævarsson, Hafþór Ingi Gunnarsson, Darrel Flake, Íris Gunnarsdóttir ofl.

Tímatafla fyrir salinn verður sett hér inná síðuna og auglýst í íþróttahúsinu fljótlega.

Finnur Jónsson er verkefnisstjóri hjá körfunni og sér um yngri flokkana ásamt yngri flokka ráði.  Síminn hjá Finni er 898 9208 og netfang finnur23@simnet.is

 

meira...
13. ágúst 2010 11:13

Darrell Flake til liðs við Skallagrím

Darrel Flake í rétta gula litnum
Körfuknattleiksdeild Skallagríms er í óða önn að styrkja liðið fyrir komandi átök í 1. deildinni í vetur og hefur fengið Bandaríkjamanninn Darrell Flake til liðsins. Flake er öllum körfuknattleiksunnendum á Íslandi vel kunnur og hefur hann leikið sex tímabil á Íslandi, þar af tvö góð tímabil í Borgarnesi  2006-2008. Á síðasta tímabili lék hann með Grindavík í Iceland express deildinni  þar sem hann var með 20.5 stig og 7.3 fráköst að meðaltali og skilaði 24.1 framlagsstigi að meðaltali í leik.

Pálmi Þór þjálfari var að vonum sáttur.

meira...
12. ágúst 2010 08:59

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir í atvinnumennsku í körfubolta

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir körfuboltakona er á leiðinni til Frakklands þar sem hún mun spila með liðinu Olympique Sannois Saint-Gratien sem leikur í þriðju efstu deild.  Frá þessu er greint í fjölmiðlum m.a. MBL sem sjá má hér á meðfylgjandi slóð. NF2.http://www.mbl.is/mm/sport/korfubolti/2010/08/12/sigrun_i_atvinnumennsku_i_paris/ 

 

Sigrún er mikil íþróttakona og hefur stundað íþrótt sína af mikilli fagmennsku.  Hún á nokkur sporin á fjölunum (dúknum) í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Hún á eflaust eftir að standa sig vel í franska boltanum.  Körfuknattleiksdeild Skallagríms sendir henni góðar kveðjur og óskar henni velfarnaðar í Frakklandi.

meira...
6. ágúst 2010 03:50

Kveðja frá stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms

Stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem aðstoðuðu á einn og annan hátt við undirbúning og framkvæmd Unglingalandsmóts fyrir körfuna.   Sjá hér undir meira.

 

meira...
6. júlí 2010 01:51

Spáð í spilin í 1. deild

Á karfan.is er umfjöllun um liðin í 1. deild karla og spáð í spilin fyrir næsta vetur.  Með því að smella á tengilinn hér inná síðuna hjá körfunni má sjá samtal við Pálma Þór Sævarsson fyrir skömmu.

http://karfan.is/frettir/2010/07/02/sumarid_og_1._deild:_skallagrimur 

meira...
30. júní 2010 01:53

Körfuknattleiksdeild Skallagríms semur við 8 leikmenn

Körfuknattleiksdeild Skallagríms undirbýr nú baráttu komandi vetrar í fyrstu deild mfl. Karla.  Stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms skrifaði í dag undir samning við 8 leikmenn.   Áður hafði Hafþór Ingi Gunnarsson endurnýjað samning sinn við Skalla. 

meira...
16. júní 2010 11:07

Óskum eftir áhugasömum til starfa fyrir Körfuknattleiksdeild

Margar hendur vinna létt verk ! Það er í mörg horn að líta í starfi íþróttadeilda.  Skoðaðu hér undir meira ef þú hefur áhuga á að starfa með okkur í körfuknattleiksdeild Skallagríms við hin ýmsu störf. 

meira...
16. júní 2010 11:05

Æfingar meistaraflokka karla og kvenna í sumar

Meistaraflokkar Skallagríms í 1. deild eru með æfingar 2x í viku.  Sjá nánar um tímasetningar og síma hjá þjálfurum hér undir meira. 

meira...
16. júní 2010 11:02

Körfuboltaæfingar fyrir Unglingalandsmót

 Körfuboltaæfingar fyrir aldurshópinn 11-18 ára vegna Unglingalandsmóts í Borgarnesi, fara af stað mánudaginn 21. júní. Sjáið hér undir meira um tímasetningar og þjálfara.

meira...
8. júní 2010 10:43

Hafþór skrifar undir samning

Körfuknattleiksdeild Skallagríms er nú að undirbúa næsta leiktímabil.
Deildin ætlar að mæta með öflug lið bæði í karla og kvenna flokki í fyrstu deildinni.  Á dögunum skrifaði Hafþór Ingi Gunnarsson undir samning við deildina.  Hafþór hefur á undanförnum árum verið leikstjórnandi og fyrirliði mfl. hjá Skallagrím og afar mikilvægur fyrir liðið.  Það er mikill fengur fyrir deildina að njóta krafta hans áfram.  Hafþór náði sér vel á strik á síðasta leiktímabili eftir erfið meiðsli en hann sleit krossbönd í hné árið 2008.  Deildin væntir mikils af samstarfi þeirra félaga Hafþórs og Pálma Sævarssonar þjálfara.
 

meira...
4. maí 2010 08:09
30. apríl 2010 12:55
27. apríl 2010 12:48
31. mars 2010 10:05
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes