Góð ráð til foreldra barna í knattspyrnu

 

  • Komdu á æfingu eða keppni þegar þú getur. Barninu finnst það gaman! 
     
  • Ekki hvetja bara þitt barn í leik eða keppni, heldur allt liðið. 
     
  • Sýndu jákvæðni og stuðning (líka í mótlæti) - ekki gagnrýna.
  • Berðu virðingu fyrir störfum þjálfarans - ekki reyna að hafa áhrif á hann meðan á leik eða keppni stendur. 
     
  • Dómarinn er til að leiðbeina og kenna jafnt sem að dæma. Ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
  • Hvettu barn þitt til að taka þátt í æfingum og keppni. - Ekki beita þau þrýstingi. 
     
  • Spurðu barnið að keppni lokinni hvort var gaman og hvernig það stóð sig. - Ekki endilega hvernig fór, því úrslitin eru ekki aðalatriði.
  • Berðu virðingu fyrir starfi félagsins. 
     
  • Verið virk á foreldrafundum þar sem umræður fara fram um þjálfun og markmið, þar er ykkar vettvangur sem og í foreldraráði. 
     
  • Mundu að það er barnið þitt sem er að taka þátt. - EKKI ÞÚ! Sumum foreldrum hættir til að gleyma því. 
     
  • Viltu hjálpa til og vera virkari í stuðningi þínum við knattspyrnuiðkun barns þíns? - Bjóddu fram aðstoð þína, vertu liðsstjóri, bjóddu þig fram í foreldraráð, spurðu þjálfarann hvernig þú getur hjálpað til.

 

Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes