26. febrúar 2010
Fréttir af 5 og 6 flokki kvk og kk
5. fl kvenna tók þátt í hraðmóti sem haldið var í Grindavík síðastliðinn sunnudag. Farið var með tvö lið á mótið, A og C lið.
C liðinu gekk ekk nógu vel. Töpuðu öllum sínum leikjum en geta enga síður verið stoltar af sjálfum sér, því þær gáfust aldrei upp og voru virkilega að leggja sig fram.
A liðið spilaði svo seinnipartinn og stóðu sig frábærlega, unnu til silfurverðlauna, sem verður að teljast virkilega flottur árangur hjá þeim, en þær spiluðu 5 leiki og töpuðu bara úrslitaleiknum sem var á móti KR. Virkilega flott hjá þeim
Næsta mót hjá þeim er Goðmótið á Akureyri 12-14 mars n.k
6. fl karla tók einnig þátt í hraðmóti sem haldið var í keflavík síðastliðinn laugardag. Farið var með tvö lið í mótið, A og D lið.
D liðið spilaði um morguninn og spiluðu 5 leiki, unnu tvo, töpuðu tveim og gerðu eitt jafntefli og stóðu sig virkalega vel þar sem nokkrir strákar voru á sínu fyrsta móti. Það sem meira er, er það að allir skemmtu sér konuglega vel. B liðið spilaði einnig 5 leiki og gekk þeim ekki alveg eins vel. Töpuðu þeir 4 leikjum og unnu 1 en flestir leikirnir voru jafnir og spennandi, þannig að það er ekki að neinu að kviða hjá þeim, bara að halda áfram að æfa vel og bæta sig.
Björn Sólmar