9. mars 2010
Nú spilum við Bingó í félagsmiðstöðinni Óðal á fimmtudaginn 11. mars kl. 19.30
Fjöldi glæsilegra vinninga
Aðalvinningar:
- Gisting með morgunverði fyrir tvo á Hótel Hamri
- Glæsilegur GSM sími
Verð á bingóspjöldum:
Eitt spjald 700 kr
Tvö spjöld 1.200 kr
Þrjú spjöld 1.500 kr
Allir hjartanlega velkomnir á Bingó !
Við þökkum fyrirtækjum og stofnunum sem gáfu okkur vinninga kærlega fyrir stuðninginn.
Bingónefnd Körfuknattleiksdeildar Skallagríms
5. mars 2010
Það er margt framundan í körfunni næstu vikuna.
- Bingóstjórar deildarinnar bjóða uppá bingó fimmtudagskvöldið 11. mars í félagsmiðstöðinni Óðal kl. 19.30. Glæsilegir vinningar í boði m.a. kvöldverður á Hótel Hamri og gsm símar
- 12. mars föstudag - Heimaleikur hjá mfl. karla kl. 19.15 á móti ÍA
- 13. mars laugardag - Heimaleikur hjá mfl. kvenna kl. 15.00 á móti Stjörnunni
- 13.-14. mars 11.flokkur drengja - Skallagrímsdrengir leika í sínum riðli á Akranesi, íþróttahúsinu Jaðarsbökkum, laugardag og sunnudag 13. og 14. mars
- 16. mars þriðjudag - Heimaleikur hjá drengjaflokk kl. 19.00 á móti Stjörnunni
2. mars 2010
Á næstu dögum mun Knattspyrnudeild Skallagríms halda sinn árlega aðalfund en nákvæm dagssetning verður auglýst síðar. Í vetur hefur stjórnin ásamt foreldrum iðkenda unnið að stefnumótun deildarinnar með það að markmiði að gerast Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
28. febrúar 2010
Sameiginlegt lið Skallagríms/Snæfells varð í gær bikarmeistari i drengjaflokki. Strákarnir léku til úrslit á móti liði Hamars/Þórs. Úrslit leiksins voru 80-78 fyrir okkar menn. Það var Egill Egilsson sem var langstigahæstur, skoraði 41 stig og tók 9 fráköst. Kristján Andresson skoraði 17 stig og tók 9 fráköst og Trausti Eiríksson skoraði 7 stig og tók hvorki meira né minna en 16 fráköst. Nánar um tölfræði leiksins inná http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=366&game_id=45841
Glæsilegur árangur hjá strákunum og við hvetjum áhugafólk um körfubolta til að mæta á leik hjá þeim á miðvikudaginn hér í Borgarnesi en þá spila þeir á móti Grindavík og hefst leikurinn kl. 20.00
28. febrúar 2010
Trausti Eiríksson, körfuboltamaður, hlaut í gær á íþróttahátíð UMSB, tiltilinn Íþróttamaður Borgarfjarðar. Trausti er afar vel að þessum titli kominn og hlaut fyrr í vetur titilinn íþróttamaður Borgarbyggðar. Jón Ingi Sigurðsson sundmaður var í öðru sæti og Sigurður Þórarinsson körfuboltamaður í þriðja sæti. Körfuknattleiksdeildin óskar Trausta innilega til hamingju með titilinn og íþróttamönnunum öllum sem tilnefndir voru til hamingju.
26. febrúar 2010
5. fl kvenna tók þátt í hraðmóti sem haldið var í Grindavík síðastliðinn sunnudag. Farið var með tvö lið á mótið, A og C lið.
C liðinu gekk ekk nógu vel. Töpuðu öllum sínum leikjum en geta enga síður verið stoltar af sjálfum sér, því þær gáfust aldrei upp og voru virkilega að leggja sig fram.
A liðið spilaði svo seinnipartinn og stóðu sig frábærlega, unnu til silfurverðlauna, sem verður að teljast virkilega flottur árangur hjá þeim, en þær spiluðu 5 leiki og töpuðu bara úrslitaleiknum sem var á móti KR. Virkilega flott hjá þeim
Næsta mót hjá þeim er Goðmótið á Akureyri 12-14 mars n.k
Hvetjið börnin til þátttöku, ekki þvinga þau, ánægja þeirra og áhugi er það sem máli skiptir.
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes